ÍRIS ANNA OG GUÐMUNDUR DAÐI SIGURVEGARAR Í GATORADE SUMARHLAUPA MÓTARÖÐINNI 2023

20. ágúst 2023

Sigurvegarar í Sumarhlaupum Gatorade eru Íris Anna Skúladóttir og Guðmundur Daði Guðlaugsson. 

 

Sumarhlaup Gatorade eru fjögur hlaup sem telja til stiga, Fjölnishlaup Olís, Miðnæturhlaup Suzuki, Ármannshlaupið og Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.  Stig eru veitt fyrir 10 km í hlaupunum. 

 

Íris Anna Skúladóttir sigraði í heildarkeppni kvenna og í flokki 30-39 ára.  Íris Anna sigraði í öllum þremur hlaupunum sem hún tók þátt í, Fjölnishlaupi Olís, Miðnæturhlaupi Suzuki og Ármannshlaupinu.  Þessi árangur gaf henni 45 stig. 

Önnur varð Fríða Rún Þórðardóttir með 41 stig og þriðja varð Anna Berglind Pálmadóttir með 27 stig. 

 

Guðmundur Daði Guðlaugsson sigraði heildarkeppni karla og í flokki 30-39 ára,  Guðmundur Daði tók þátt í öllum hlaupum Gatorade sumarhlaupanna. Guðmundur Daði varð annar í Fjölnishlaupi Olís, fjórði í Miðnæturhlaupi Suzuki, fyrsti í Ármannshlaupinu og annar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Þessi árangur gaf honum 48 stig. 

Annar varð Daníel Þór Ágústsson með 25 stig og þriðji Valur Elli Valsson með 22 stig. 

 

Við óskum þeim til hamingju með sigurinn. 

Styrktaraðilar