
Fjölnishlaup Olís verður ræst í 36. sinn á Uppstigningardag 9. maí 2024 klukkan 11:00 frá Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi við Dalhús.
- 18 ára og yngri
- 19-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 ára og eldri
Tímasetning
Uppstigningardaginn, 9. maí 2024, kl. 11:00
Vegalengdir
Boðið er uppá 10 km hlaup og 5 km hlaup. Bæði 10 km og 5 km vegalengdirnar eru löglega mældar.
Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga í stigakeppni Gatorade sumarhlaupanna.
Hlaupaleiðir
10 km hlaupið verður ræst kl 11:00 frá göngustíg við Gagnveg sem er um 500 m norðaustan við Íþróttamiðstöðina í Dalhúsum - sjá kort. Hlaupstjóri fylgir hlaupurum að rásmarki 10 mín fyrir ræsingu.
Hlaupið verður vestur fyrir fótboltavöllinn eftir Gagnvegi og um Fjallkonuveg og þaðan beygt niður göngustíg í átt að Grafarvogi og hann hlaupinn í vesturátt. Beygt verður inn í Bryggjuhverfið um Gullinbrú og þaðan verður hlaupið eftir göngustíg meðfram Elliðaárósum og yfir nýju brýrnar við Geirsnef. Rangsælis hringur er tekinn um Geirsnef yfir gömlu brýrnar og meðfram Sævarhöfða. Síðan verður sama leið hlaupin til baka. Endamark er við Íþróttamiðstöðina í Dalhúsum. Brautin er annáluð fyrir góðar bætingar enda mjög flöt ef frá er talinn upphafs- og lokakílómetri.
5 km hlaupið verður ræst kl 11:10 frá endamarki. Hlaupaleiðin er sú sama og í 10 km hlaupinu fyrri helming hlaupsins, en í Bryggjuhverfi verður snúið við og hlaupið sömu leið til baka.
Skráning og þátttökugjöld
Þátttökugjöld eru 3.500 kr fyrir 10 km hlaup og 3.000 kr fyrir 5 km hlaup. Í skemmtiskokkið er þátttökugjaldið 1.500 kr fyrir 17 ára og eldri en 750kr fyrir 16 ára og yngri. Skráning fer fram á netskraning.is, hægt er að skrá sig þar til afhendingu gagna lýkur á hlaupadag.
Afhending gagna verður frá kl. 18:00-19:00 þann 8. maí og á keppnisdag frá 09:30 til 10:15 í anddyri Grafarvogslaugar í Íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum. Hlaupahaldari getur ekki tryggt ef að gögn eru sótt á hlaupadag að viðtakandi fái þau afhent í tíma fyrir ræsingu.
Athugið að aldurstakmark í 10 km hlaupið er 12 ára.
Verðlaun
Verðlaunaafhending að hlaupi loknu fyrir fyrstu 3 í karla og kvennaflokki í 5 og 10 km hlaupi. Farandbikarar fyrir 1. sæti karla og kvenna í 10 km hlaupum.
Keppendur í 10 fyrstu sætum karla, kvenna og í aldursflokkum í 10 km hlaupi öðlast stig í keppni um stigahæstu hlaupara í Gatorade sumarhlaupum.
Aldursflokkar
10 km hlaup
Tímataka og úrslit
Tímataka verður með flögum í öllum vegalengdum.
Úrslit verða birt á vef Gatorade sumarhlaupanna og timataka.net
Drykkir
Þátttakendur fá Gatorade í boði Ölgerðarinnar við 5 km og í endamarki.
Skipuleggjendur
Framkvæmd hlaupsins er í höndum frjálsíþróttadeildar Fjölnis en vefsíða deildarinnar er á fjolnir.is.
Úrslit fyrri hlaupa
Fjölnishlaup 2023
Fjölnishlaup 2022
Fjölnishlaup 2021
Fjölnishlaup 2020
Fjölnishlaupið 2019
Fjölnishlaup Gaman Ferða 2018
Fjölnishlaup Gaman Ferða 2017
Fjölnishlaupið 2016
Fjölnishlaupið 2015
Fjölnishlaupið 2014
Fjölnishlaupið 2013
Fjölnishlaupið 2012
Fjölnishlaupið 2011
Fjölnishlaupið 2010
Fjölnishlaupið 2009
